Hlaðvarpið

Informações:

Synopsis

Podcast by Óli Jóns

Episodes

  • Auður Ösp Ólafsdóttir

    15/03/2024 Duration: 53min

    Auður Ösp Ólafsdóttir átti og rak ferðaþjónustufyrirtækið I Heart Reykjavík í áratug og byggði það upp með persónulegum sögum af landi og þjóð. Þar blandaði hún persónulegum frásögnum, á meistaralegan hátt, saman við fjölbreytileika íslenskrar menningar og náttúru. Nálgun hennar heillaði ekki aðeins ferðamenn alls staðar að úr heiminum heldur gaf hún einyrkjum og minni ferðaþjónustuaðilum von í harðri samkeppni við stærri fyrirtæki.

  • Friðrik Guðjónsson Feed The Viking

    27/01/2024 Duration: 01h04min

    Í þessum þætti ræðir Óli Jóns við frumkvöðulinn og athafnamanninn Friðrik Guðjónsson stofnanda Feed the Viking. Friðrik er athafnamaður og frumkvöðull og ótal margt til lista lagt. Hann hefur komið víða við á lífsleiðinni. Hann hefur kennt á brimbretti á Hawaii, bjargað fólki úr lífsháska sem meðlimur í björgunarsveit og stofnað nokkur farsæl fyrirtæki, hér segir Friðrik sögu sína og frá hans hugmyndafræði á bak við velgengni. Friðrik vildi verða bankastarfsmaður eftir að hafa orðið fyrir miklum áhrifum af verðbréfamiðlurum Wall street. Hann byrjaði í verkfræði í Hí til að geta farið þaðan að vinna í banka en það var of mikið stökk frá framhaldsskólanum, það átti ekki við Friðrki að sitja í Þjóðarbókhlöðu að diffra. Friðrik segist svo hafa gefist upp á háskólanáminu keypt sér Playstation tölvu og ekki farið út úr húsi í tvær vikur. Friðrik skráði sig í viðskiptafræði 2003 hjá Háskóla Reykjavíkur og hóf nám þar um áramót, uppgvötvaði þar að hann gæti lært. Hafði gaman af að læra þar og kynntist mikið af g

  • Gulli Aðalsteinsson Cirkus

    19/01/2024 Duration: 51min

    Gestur minn í þessum þætti er Guðlaugur (Gulli) Aðalsteinsson hjá Cirkus. Við fórum um víðan völl í viðtalinu allt frá hænsnabúum að ÍMARK. Gulli hefur stússað ýmislegt í gegnum tíðina. Hann er alinn upp á hænsnabúi fyrstu ár ævinnar hjá mjög hugmyndaríkum foreldrum, hann hefur alltaf verið að teikna og eitthvað í tónlist, fór í nám í Bournemouth eftir að hafa valið skóla út frá töff brimbrettakappa. Hann hefur unnið á fjölmörgum auglýsingastofum og viðskiptavinir hafa fylgt honum á milli stofa. Hann stofnaði Cirkus ásamt þeim Hauki Viðari Alfreðssyni og Jens Nørgaard-Offersen árið 2020 Það voru settar þrjár reglur þegar Cirkus var stofnuð 1. Ætla ekki að vinna yfirvinnu 2. Taka ekki þátt í pitchum 3. Eftir hádegi á föstudögum eru alltaf frímínútur Þú getur heyrt meira um þessar reglur og önnur Cirkus-trix í spjallinu okkar.

  • Hörður Harðarson - Landsstjóri - Entravision Ísland

    05/10/2023 Duration: 44min

    Hörður kom í viðtal hjá Óla Jóns í nóvember 2017 í þætti númer 41. Í þessu viðtali fer Hörður yfir hvað Entravision sem er vottaður sölu- og þjónustuaðili fyrir Meta er, hvað þjónustu þau bjóða upp á osfrv. Hluti af þeim spurningum sem koma svör við í þessu viðtali. Hvað er Entravision? Hvað þjónusta er hjá Entravision? Hvað þarf ég til að vera viðskiptavinur Entravision? Þarf ég að verja lágmarksupphæð í birtingar? Afhverju kostar þjónusta Entravision ekki neitt, fæ ég svo reikning í bakið seinna? Tapa ég einhverju á að vera í viðskiptum við Entravision? Dekkun og tíðni, hvað er það? Á https://entravision-iceland.com/ segir um Entravision að þau séu Vottaðir sölu- og þjónustuaðilar Meta eru hluti af teymi Meta í völdum löndum á heimsvísu. Hjá þeim starfa sérfræðingar sem hafa verið sérstaklega valdir, þjálfaðir og vottaðir af Meta. Sérfræðingar okkar veita fyrirtækjum endurgjaldslausan stuðning og ráðgjöf, allt frá þarfagreiningu til stefnumótandi ráðgjafar. Vottaðir sölu- og þjónustuaðilar Meta hjálpa fyr

  • Margeir Haraldsson Arndal Lýðskólanum Flateyri

    28/08/2023 Duration: 55min

    Margeir Haraldsson Arndal Verkefnastjóri markaðs- og tæknimála hjá Lýðskólanum á Flateyri Í þessu viðtali ræðir Óli Jóns við Margeir Haraldsson Arndal um lífið á landsbyggðinni, um Lýðskólann á Flateyri, um skapandi hugsun, um markaðsmál og margt fleira. Margeir sem býr á Flateyri með sinni fjölskyldu starfar hjá Lýðskólanum á Flateyri við markaðssmál ásamt því að sjá um tæknimál skólans. Margeir er líka með önnur járn í eldinum s.s. framleiðslufyrirtæki með tvíburabróður sínum. Á vef Lýðskólans lydflat.is segir; Hvað er lýðskóli? Nám við lýðskóla er ólíkt því sem við eigum að venjast í hefðbundnum framhaldsskólum. Í lýðskóla fá nemendur og kennarar tækifæri til að vera við leik og störf og prófa sig við ólík viðfangsefni án þess að þurfa að sökkva sér niður í fræðilegar kenningar og skólabækur. Samtöl og samvinna, verklegt nám og vettvangsferðir eru lykilorð. Námsmat og endurgjöf í lýðskólum er ekki fengið með hefðbundnum prófum og einkunnum heldur í gegnum fundi og samtöl. Þetta gefur lýðskólum frelsi til

  • Inga Hlín Pálsdóttir Framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.

    08/08/2023 Duration: 44min

    Inga Hlín Pálsdóttir Framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins. Inga Hlín kom einnig í viðtal janúar 2021 þar sem við ræddum meðal annars áskoranir ferðaþjónustu fyrirtækja í Covid. Inga Hlín hefur undanfarin ár starfað sem alþjóðlegur ráðgjafi og fyrirlesari. Helstu verkefni hafa snúið að samstarfi fyrirtækja og opinberra aðila, stefnumótun, markaðssetningu, breytingastjórnun og sjálfbærni í tengslum við svæði og borgir. Hún hefur starfað með ýmsum aðilum í tengslum við ráðgjöf og má þar helst nefna Austurbrú, Reykjavíkurborg og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Samhliða starfaði Inga Hlín hjá norrænu ráðgjafarfyrirtæki á sviði þróunar, nýsköpunar og markaðssetningar svæða. Inga Hlín er með B.Sc. próf í viðskiptafræði frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst og M.Sc. próf í alþjóðamarkaðsfræði frá The University of Strathclyde í Skotlandi. Hún starfaði áður í yfir áratug hjá Íslandsstofu og Útflutningsráði, lengst sem forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina. Þar stýrði hún meðal annars ky

  • Halldór Bachmann Kynningarstjóri hjá Almenna lífeyrissjóðnum

    02/08/2023 Duration: 01h09min

    Halldór Bachmann Halldór hefur frá mörgu áhugaverðu að segja og gerir það í þessu einlæga viðtali. Persónulegar áskoranir í lífi og starfi, hindranir og sigrar. Það er áhugavert að heyra Halldór segja frá vinnu sinni við vörumerki eins og MasterCard, IcelandAir, KEA, Sambandinu, Morgunblaðinu og mörgum fleirum.

  • Davíð Arnarson Datera SEO og Google Analytics

    10/07/2023 Duration: 52min

    Davíð Arnarson hjá Datera spjallar ma. um SEO og Google Analytics.

  • Þorgils Sigvaldason

    30/06/2023 Duration: 51min

    Hér eru 5 viðtöl sem Óli Jóns tók á árinu 2022 og fyrir annan hlaðvarpsþátt en eru nú endurbirt hér. Guðrún Þórisdóttir, Gray Line Worldwide Helgi Pjetur, Púls Media Þorgils Sigvaldason, CrankWheel Gísli S Brynjólsson, Icelandair Arnar Gísli Hinriksson, Digido

  • Guðrún Þórisdóttir

    30/06/2023 Duration: 32min

    Hér eru 5 viðtöl sem Óli Jóns tók á árinu 2022 og fyrir annan hlaðvarpsþátt en eru nú endurbirt hér. Guðrún Þórisdóttir, Gray Line Worldwide Helgi Pjetur, Púls Media Þorgils Sigvaldason, CrankWheel Gísli S Brynjólsson, Icelandair Arnar Gísli Hinriksson, Digido

  • Helgi Pjetur

    30/06/2023 Duration: 42min

    Hér eru 5 viðtöl sem Óli Jóns tók á árinu 2022 og fyrir annan hlaðvarpsþátt en eru nú endurbirt hér. Guðrún Þórisdóttir, Gray Line Worldwide Helgi Pjetur, Púls Media Þorgils Sigvaldason, CrankWheel Gísli S Brynjólsson, Icelandair Arnar Gísli Hinriksson, Digido

  • Gísli S Brynjólfsson

    30/06/2023 Duration: 28min

    Hér eru 5 viðtöl sem Óli Jóns tók á árinu 2022 og fyrir annan hlaðvarpsþátt en eru nú endurbirt hér. Guðrún Þórisdóttir, Gray Line Worldwide Helgi Pjetur, Púls Media Þorgils Sigvaldason, CrankWheel Gísli S Brynjólsson, Icelandair Arnar Gísli Hinriksson, Digido

  • Arnar Gísli Hinriksson

    30/06/2023 Duration: 47min

    Hér eru 5 viðtöl sem Óli Jóns tók á árinu 2022 og fyrir annan hlaðvarpsþátt en eru nú endurbirt hér. Guðrún Þórisdóttir, Gray Line Worldwide Helgi Pjetur, Púls Media Þorgils Sigvaldason, CrankWheel Gísli S Brynjólsson, Icelandair Arnar Gísli Hinriksson, Digido

  • Àsgeir Fannar Àsgeirsson CEO TripCreator

    28/06/2023 Duration: 42min

    Ásgeir hefur starfað í ferðaþjónustunni síðan 2007, fyrst í 11 ár í DMC fyrirtæki við skipulagningu hvataferða og viðburða erlendra fyrirtækja til Íslands, þareftir í 2 ár í dagsferðarfyrirtæki sem framleiddi dagsferðir í rútum frá Reykjavík og nú í 4 ár sem framkvæmdastjóri TripCreator. Ásgeir hefur jafnframt 8 ára reynslu af þróun innanhússhugbúnaðar sem notaður var í tilboðs- og leiðarlýsingargerð fyrir DMC fyrirtækið og nýtir þá reynslu í vinnu sinni hjá TripCreator. TripCreator er sölu- og umsjónarkerfi (e. Travel Management Solution) fyrir fagaðila í ferðaþjónustunni (B2B), fyrir þá sem útbúa leiðarlýsingar fyrir sína viðskiptavini, hvort heldur endaviðskiptavini eða aðra samstarfsaðila. Í lausninni er jafnframt reikningagerðarkerfi, rekstrarkerfi, bókunarvél, utanumhald um viðskiptavini, birgja og samstarfsaðila, og fleira sem leysir dagleg verkefni starfsfólks ferðaskrifstofa og ferðaskipuleggjenda.

  • Efnismarkaðssetning - Content Marketing Hans Júlíus Þórðarson hjá Vettvang

    19/06/2023 Duration: 01h15min

    Hans Júlíus Þórðarson hjá Vettvangi ræðir um efnismarkaðssetningu við Óla Jóns

  • Bryndís Rún Baldursdóttir Markaðsstjóri heilsu - og íþróttasvið hjá Icepharma

    08/03/2023 Duration: 01h05min

    Allt um markaðssetningu vörumerkja eins og Nike og Speedo með Bryndísi Rún hjá Icepharma. Bryndís útskrifaðist með meistaragráðu í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands.

  • 148. Lokaþátturinn

    31/12/2021 Duration: 37min

    í þessum lokaþætti af Hlaðvarpinu á Jóns farið yfir þessi ár og þessa þetta þætti sem komnir eru í loftið. Virkilega skemmtilegt verkefni sem hefur kennt mér heilmikið, gefið mér fjölmörg tækifæri og síðast en ekki síst allt fólkið sem ég er búinn að kynnast. Þakka öllum sem hafa komið, öllum sem hafa hlustað og öllum sem hafa hjálpað mér að halda þessu gangandi. Þar fer að sjálfsögðu frú Katrín Kjartansdóttir Arndal (aka ljónið) konan mín, á hennar hugsa ég að lokaþáttur hefði verið ca 140 þáttum fyrr.

  • 147. Heiðrún Arna og Guðrún Unnur hjá Siteimprove

    30/12/2021 Duration: 34min

    Í nóvember kíkti ég í heimsókn til Siteimprove í Kaupmannahöfn og hitti þar Guðrúnu Unni Gústafsdóttur og Heiðrúnu Örnu Óttarrsdóttur. Þær sögðu mér frá þeirra lífi og starfi í Danmörku ásamt því að fara yfir hvað Siteimprove.

  • 146. Styrmir Másson

    29/12/2021 Duration: 38min

    Í nóvember síðastliðnum hitti ég í ásamt Agnari Frey Gunnarssyni samstarfsfélaga hjá Birtingahúsinu Styrmi Másson á vinnustað hans í Kaupmannahöfn. Styrmir starfar sem "Performance Marketing Lead" hjá Planday. Í þessu spjalli segir Styrmir okkur frá Planday, fyrir hverja það er og hvernig markaðssetningu er háttað. "Planday is a technology company that was born in a Danish bar. We’ve come a long way since our cofounders first dreamed up a tool that would make scheduling and communicating more straightforward. With over 12 years of experience in the industry, we’re well-placed to provide businesses with a solution that meets their unique needs. Powered by some of the smartest people in the world, and driven by a growth-centric business model, we’re not only changing the way businesses across the world operate, but also how managers and employees fundamentally interact with each other."

  • 145.Anna Kristín Magnúsdóttir

    28/12/2021 Duration: 48min

    Anna Kristín Magnúsdóttir hjá Kjólum & Konfekt sem kom í hlaðvarpið í nóvember 2016 kom aftur í spjall í október síðastliðnum. Ýmislegt hefur breyst á þessum tíma, m.a annars hefur Anna opnað aðra verslun Rokk & Rómantík sem er á Laugaveginum líkt og Kjólar & Konfekt. Anna hefur auk þess opnað vefverslun og auðvitað gengið í gegnum ýmislegt í sínum rekstri að undanförnum líkt og aðrir.

page 1 from 10